Ertu að lesa blogg í vinnunni? Flýðu hingað ef stj?rinn kemur! Er Fjandinn Losnar

Er Fjandinn Losnar

[ mánudagur, maí 10, 2004 ]

 
Ég er kominn me? nýtt blogg hér vegna ?ess a? nýja bloggerkerfi? sty?ur ekki þ æ og ð á gömlum „templeitum“!!!
Arngrímur Vídalín [11:47 AM]

|

 
Ég er ekki sáttur!
Arngrímur Vídalín [11:42 AM]

|

 
Blogger hefur teki? á sig nýja, og v?gast sagt vi?bjó?slega, mynd. Úrval ?eirra af „templeitum“ hefur raunar st?kka? til muna og er ?a? vel. Hins vegar minnir hi? nýja lúkk mig helst til miki? á Movable Type bloggin, en stórmunur er á ?eim og Blogger.
Arngrímur Vídalín [11:35 AM]

|

[ sunnudagur, maí 09, 2004 ]

 
Einnig hefði ég ekkert á móti því að eignast Das geographische Weltbild des späteren englischen Mittelalters mit besonderer Berücksichtigung der Vorstellungen Chaucer’s und seiner Zeitgenossen, af sömu ástæðu og mig langar í hina bókina.
Arngrímur Vídalín [6:00 PM]

|

 
Mig langar í bókina Evangelísk-kristileg Messu-söngs- og Sálma-bók, að konunglegri tilhlutun samantekin til almennilegrar brúkunar í kirkjum og heima-húsum og útgefin af því konunglega íslenska Lands-uppfræðingar félagi. Þó ekki væri nema fyrir titil hennar.
Arngrímur Vídalín [5:48 PM]

|

 
Síðast ég vissi vildu konur að báðar klósettseturnar skyldu settar niður, því þeim þætti það betri frágengni, og ég er alveg sammála því. Þetta er sami hlutur og t.d. að loka skápnum eftir að maður hefur sótt sér glas þangað. Það þykir mér lítil afsökun að segja alltaf að „það taki því ekki“ að ganga frá eftir sig.

Ekki að ég uppfylli eigin standarda. Raunar mætti frekar segja að ég geri þveröfugt við það sem ég boða hér, en engu að síður þykir mér það góður siður að skilja seturnar eftir niðri.
Arngrímur Vídalín [5:05 PM]

|

 
Grætur ekki að afgreiða Mörð allra landsmanna, þann er Árnason heitir. Fékk annars að fara fyrr heim úr vinnunni til að læra. Nú skal lært eins og Árnason.
Arngrímur Vídalín [4:47 PM]

|

[ laugardagur, maí 08, 2004 ]

 
Undarlegur vinnudagur
Í vinnunni í dag afgreiddi ég einhvern ţann mest skerí gaur sem ég hef séđ ađ Tom Waits undanskildum. Hafđi hann orđ á ţví ađ enginn ţyrđi ađ koma á kassann minn vegna ţess hve skerí ég vćri, en svo vildi einmitt til ađ langar biđrađir höfđu myndast á öllum kössunum nema mínum. Ţetta ţóttu mér undarleg orđ.
Arngrímur Vídalín [7:32 PM]

|

 
Síđasta röfl mitt um hvali
Einhversstađar heyrđi ég ađ fjöldi hvala viđ Íslandsstrendur hefđi tvöfaldast frá fyrstu mćlingum (1957 ađ mig minnir). Annarsstađar heyrđi ég ađ hvalir teldust ekki lengur í útrýmingarhćttu - svo mikiđ hefđu ţeir fjölgađ sér. Burtséđ frá ţví hvort ţetta sé satt eđa ekki er ţađ mín skođun ađ viđ ćttum ekki ađ taka hvali umfram hag íslensku ţjóđarinnar. Nú verđur ekkert meira bloggađ um hvali, hvorki nú né síđar.
Arngrímur Vídalín [7:24 PM]

|

 
Grćtur ekki ađ lesa sögu međ Niflungahring Wagners í forgrunni. Gefur ţessu meiri dramatík.
Arngrímur Vídalín [11:55 AM]

|

[ föstudagur, maí 07, 2004 ]

 
Viðbót við síðustu færslu
Það skal þó enginn efast um að ég er náttúruverndarsinni. Reyndar er ég mjög íhaldssamur í flestu og tek trauður á móti breytingum, sem er vissulega slæmt á fleiri vegu en það er gott. Hvalirnir þurfa þó að sitja á hakanum. Eða á gafflinum.
Arngrímur Vídalín [8:46 PM]

|

 
Í dag barst mér bréf í pósti frá Þýskalandi. Vitanlega ályktaði ég að það væri frá einhverjum málfræðingnum, leitandi ásjár minnar og ótakmarkaðrar speki á sviði málvísinda (vitanlega!). Vongóður reif ég umslagið í tætlur en varð vonsvikinn með innihaldið - vægast sagt. Í raun var þetta bréf frá einhverri (karlkyns) grænfriðungabifurkerlingu sem óskaði eftir stuðningi mínum við málstað þeirra: AÐ VERNDA HVALI! Aldrei nokkurn tíma skal ég leggja nafn mitt við málstað sem er „pro-whale“. Síst af öllu vegna þess að ég er íslendingur og fiskistofnarnir við strendur landsins eru okkar helsta lifibrauð. Annað hvort er það helmingur þjóðarinnkomunnar eða hvalirnir.
Arngrímur Vídalín [8:44 PM]

|

 
Ég heyrði í útvarpinu áðan að þulurinn sagði einhverri listastefnu svipa mjög til impressjónisma að nokkru leyti. Hér þarf að vara sig. Annað hvort svipar það til impressjónisma eða ekki.
Arngrímur Vídalín [6:17 PM]

|

 
Ţađ er sem ég hélt. Ég kemst ekkert áfram. Ég les eina setningu og sit svo og stari út í loftiđ í svona kortér. Svo les ég nćstu setningu og svo koll af kolli.
Arngrímur Vídalín [4:09 PM]

|

 
Reikningar, reikningar og aftur reikningar. Ég held ég sleppi því þó að borga símreikninginn. Hef hvort eð er ekkert að gera með slíkt gargan.

Nú verður restinni af deginum varið í lestur mannkynssögu, mitt annað uppáhaldsfag (á eftir íslensku að sjálfsögðu!). Ég hef raunar lesið þetta allt saman áður og vona ég að sú staðreynd reynist mér ekki þrándur í götu (legg til að við breytum þessu í Gyrðir á gangstíg). Ég á örugglega eftir að sofna út frá lestrinum, því fátt þykir mér verra en að lesa sama námsefnið í tvígang. Nema það námsefni tengist á einhvern hátt íslenskri tungu og menningu.
Arngrímur Vídalín [1:24 PM]

|

 
Ja, sko karl! Ef síðasta færsla var ekki ein af þeim allra lengstu!
Arngrímur Vídalín [11:06 AM]

|

 
Í tilefni af því að ég eisaði íslenskuprófið í morgun samdi ég þessa ferskeytlu:

Íslenzk tunga er vort mál
Íslenzk tunga er vort mál
at því skalat hæðast,
í tungu vorri teygjir sál
ótrautt líf sitt mærast.

Einnig ætla ég að lýsa sjálfum mér að hætti hinna íslensku sagnaritara, er fornsögur vorar reitu:

Hann var maður lítill ásýndum, eygður mjög og vel, ljós á hár og hörund, skáldmæltur mjök, þó gramur í skapi, og fyrir það var hann nefndur Grímur hinn hamrammi. Honum óx mjög í skapi hvers kyns mótlæti er við hann var gjört, en var þó manna mætastur og vinflestur (Það skal hafa í huga að sagnaritarar vorir gerðu allt sem í sínu valdi stóð til að gera persónur sínar sem gjörvulegastar. Ekki ber að túlka þetta sem einhvers konar sjálfshól!).

Fornritakenning dagsins:
Í Prologus sínum að Snorra-Eddu afsakar Snorri Sturluson skrif eddunnar og ber það fyrir sig að hann sé kristinn og að eddan sé ekki ætluð sem aðför að kristinni trú á Íslandi. Hann gerir þannig ráð fyrir því að fólk muni vilja „krossfesta“ sig og er þetta hans leið til að baktryggja sig.
Hér kemur svo kenningin. Næsti hluti Snorra-Eddu er, eins og öllum fróðum mönnum er kunnugt, Gylfaginning. Af hverju „ginning“? Sá kafli lýsir jú koma Gylfa konungs í Svíþjóð að höll Hárs, þar sem hann spyr Há, Jafnhá og Þriðja hinna ýmsu spurninga um heiðinn sið, og eru sum svör þeirra eilítið skrýtin svo ekki sé meira sagt. Sem dæmi má taka söguna af kúnni Auðhumlu, en henni tókst með stakri snilld að geta mannveru með saltstein einan að verkfæri.
Er það mín hugmynd að Snorri sé ekki einungis að afsaka heiðnina er fram kemur í ritinu, heldur einnig fáfræði fræðimannsins sem það ritaði, þ.e. hann sjálfur. Gylfaginning heitir kaflinn vegna þess að hér er Óðinn að blekkja Gylfa konung; hann segir honum ekki allan sannleikann. Sumt af því sem Óðinn segir er satt, en annað ekki. Snorri gerir engan greinarmun þar á og er heiti kaflans kannski afsökun fyrir því að hann hafi mögulega haft óöruggar heimildir fyrir ýmsum þeim hlutum er þar koma fram. Það, er kenning dagsins.

Sannleikskorn dagsins: Sumt fólki, er þú réttir litla fingur til aðstoðar, reyna að hafa af þér allan handlegginn.
Arngrímur Vídalín [10:43 AM]

|

[ fimmtudagur, maí 06, 2004 ]

 
Fram kemur í kennslubók minni í íslensku, Orđ af Orđi eftir Silju Ađalsteinsdóttur, ađ Helga Kress telji ađ Völuspá vísi til einhvers konar mćđraveldis sem Óđinn sé ađ reyna ađ leggja undir sig. Ég bara spyr: Ţarf mađur ekki ađ vera geđveikur til ađ sjá matríarkí í norrćnni gođafrćđi? Ţađ er ekkert í Völuspá sem veitt gćti kenningu Helgu Kress hljómgrunn, og ţar ađ auki er skýrt tekiđ fram í Snorra-Eddu ađ jafnrétti ríki milli ása og ásynja.

Ţeir sem mótmćla minni afstöđu geta sjálfir athugađ máliđ hér.
Arngrímur Vídalín [6:11 PM]

|

 
Ég kommentađi á livejournal bloggi áđan. Ţótti mér fyndiđ ţegar ég var beđinn um ađ stađfesta ađ ég vćri mennskur. Hálfgerđ paranoja, er ţađ ekki?
Arngrímur Vídalín [5:41 PM]

|

 
Ţađ er nú meiri lágdeyđa yfir Bloggheimum um ţessar mundir. Ţá ekki síst sökum óviđbúins hruns Konnaveldisins.
Arngrímur Vídalín [5:29 PM]

|

 
Til er enska orđiđ punker, sem samsvarar íslenska orđinu pönkari. Sýnir hve hugmyndasnauđir bretar eru, ţegar ţeir hefđu einfaldlega getađ kallađ ţetta liđ sínu rétta nafni: Punks.
Arngrímur Vídalín [5:22 PM]

|

 
Fádæma snilld má finna í Snorra-Eddu (eins og bloggið mitt frá í fyrra gefur fljótt til kynna). Ein snilldin mun vera þegar æsir binda Fenrisúlf með fjötrinum Gleipni og troða sverði upp í gin hans svo hann geti eigi glefsað. Er skoltur hans þá fastopinn og rennur slefan svo mjög úr munni hans að heil á myndast í kjölfarið.

Margt er hægt að segja um sagnaritara 13. aldar, en síst mætti um þá segja að þeir hafi gætt hófs í lýsingum sínum.
Arngrímur Vídalín [4:04 PM]

|

 
Það sem eftir er af þessum degi verður tileinkað Eddukvæðum. Verst er að ég er ekki alveg í stuði fyrir þau núna. Eigi skal það undra. Þetta mun vera fjórða skiptið sem ég les þau á örfáum mánuðum. En jæja, eigi skal það sýta. Enda er það nú varla hægt þegar Eddukvæðin eiga í hlut.
Arngrímur Vídalín [9:44 AM]

|

 
Það verður lítið annað sagt um Stand by Me en að hún hafi elst illa. Það kom mér þó skemmtilega á óvart að auk Kiefer Sutherland, sem er eini þekkti leikarinn sem ég mundi eftir að leikið hefði í myndinni, léku þeir River Phoenix, John Cusack og Richard Dreyfuss allir í henni.
Arngrímur Vídalín [9:31 AM]

|

 
Nú ættu allir góðir menn að gleðjast, þó sérstaklega holi maðurinn, því Stand by Me er í sjónvarpinu.
Arngrímur Vídalín [8:01 AM]

|

[ miðvikudagur, maí 05, 2004 ]

 
Þegar ég var barn studdi ég Sjálfstæðisflokkinn í einu og öllu, því eins og öll önnur börn gerði ég ráð fyrir því að verða ríkur, og hugði ég, að þar væri auðvaldið niður komið. Var ég bráðþroska? Hreint ekki. Enda varla hægt að tala um neinn sérstakan þroska þegar Sjálfstæðisflokkurinn á í hlut.

Þetta segi ég raunar einvörðungu til að espa vissa menn upp.


Annað sem ég vildi koma á framfæri er merking orðsins „ástmögur“, en merking þess orðs mun vera ástmaður. Sem er skrýtið, því mögur þýðir sonur. Ullabjakk! Héðan af mun öll notkun orðsins „ástmögur“ túlkast sem ígildi sifjaspells í mínum huga.
Arngrímur Vídalín [11:03 PM]

|

 
Óþolandi krakkahelvíti. Það þarf að hafa sig allan við til að halda þessum skrýmslum í burtu, og ekki bætir það úr skák að litli bróðir minn sendir boðskort út um allan bæ. Gott væri að verða sér út um einhvers konar gervigreint leisernet og koma því fyrir í dyrunum. Netið myndi aðgreina boðflennur og heimilismeðlimi og búta niður þá fyrrnefndu. Ef streymi krakka héldi áfram með sömu tíðni og undanfarið hefur verið myndi mig aldrei skorta grillkjöt. Leiserinn myndi sjá til þess.
Arngrímur Vídalín [5:37 PM]

|

 
Ég rakst á þessa síðu fyrir tilviljun. Takið eftir þar sem stendur „Mark making a traditional Icelandic meal“ við hliðina á mynd af manni sem heldur á einhverju sem helst líkist Knorr súpupakka.
Arngrímur Vídalín [5:19 PM]

|

 
Eyrbyggja saga
Íslendingar eru öðrum þjóðum verri í plebbaskap og durgslegum aðförum gegn náunga sínum. Í Eyrbyggja sögu ákveða Kjalleklingar að þeir megi míga og skíta hvar sem þeim sýnist, á helgistað eður ei. Þetta gremst Þórsnesingum og upphefst bardagi milli þeirra sem kostar sjö menn lífið.

Engu að síður fannst mér þetta fyndið. Það eru samt takmörk fyrir því hvar leyfilegt er að ganga örna sinna.
Arngrímur Vídalín [2:50 PM]

|

 
Þvílíkt Fensterwetter!
Arngrímur Vídalín [2:13 PM]

|

 
Ég minnist þess þegar ég var í tíu ára bekk að við vorum beðin um að teikna mynd af mengunarvöldum. Einn strákur, hvers nafn verður ekki nefnt, teiknaði mynd af drossíu (e. Limousine) með kjarnorkuversstrompi ofan á, sem í þokkabót var að því kominn að springa (e. meltdown). Ég gerði þau mistök að spyrja hann hvers vegna hann teiknaði kjarnorkuver ofan á bílinn. Hann greip í öxlina á mér og gargaði, rauður í framan, af öllum lífs- og sálarkröftum: Þetta er ekki kjarnorkuver, þetta er eins og Hómer vinnur í!!! ... ! (hér þurfti punktalínu vegna gríðarlegs fjölda upphrópunarmerkja)
Ég starði á drenginn í smástund. Svo gerði ég honum ljóst að Hómer þessi ynni svo sannarlega í kjarnorkuveri. Þá varð hann reiður og færði sig í hinn enda stofunnar. Eftir á að hyggja held ég að hann hafi haldið að Hómer ynni í strompinum á kjarnorkuveri (hvaðan ætti hann annars að fá slíka hugmynd?!) og þannig hafi misskilningurinn orðið hjá honum.

En hann var frumkvöðull. Því má ekki neita. Í þá daga keyrði enginn um á drossíum með áföstu kjarnorkuveri, en í dag keyra allir, ALLIR, á D.M.Á.K. (stytting á drossíum með áföstu kjarnorkuveri). Enda er það engin afsökun lengur að bíllinn sé rafmagnslaus. Halló! Bíllinn þinn klýfur úraníum!
Arngrímur Vídalín [1:59 PM]

|

[ þriðjudagur, maí 04, 2004 ]

 
Snjókoma úti. Minni á sams konar atvik í fyrra.
Arngrímur Vídalín [8:52 PM]

|

 
Stćrđfrćđiprófiđ búiđ. Ţá get ég fariđ ađ slćpast. Farinn niđur í bć.
Arngrímur Vídalín [10:36 AM]

|